Ég er orðin tryllt í farartæki

Það er algerlega ólýsanlegt að keyra eftir sveitavegum Svíþjóðar í blæjubíl með tónlistina á fullu!  Ég held að ég skilji núna afhverju fólk verður hraðageðveikt.  Og síðan afþví að ég er á Jagúar blæjubíl, þá eru aðrir sem eru á öðrum sportbílum rosa til í að tala við mig og leyfa mér að prófa sína bíla!  Ég prófaði Þennan Maserati hér fyrir neðan og hann á að vera eitthvað alveg geðveikt.  Ég móðgaði nú eigandann þegar ég sagðist ekki finna mikin mun á honum og á Poloinum mínum heima.  En bíll er bíll er bíll.  Eða hvað!  Á morgun skila ég blæjubílnum og fæ eitthvað flott frá Hertz og svo sæki ég Thelmu systir og Bjarnþór í Malmö og við munum mála Kaupmannahöfn rauða.  Síðan bara heim í öðru farartæki sem heitir örugglega fokker, og er öruggulega helvítis fucker!  Góðar stundir. 
Masarati PoloÉg og BinniJagúar

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

heheheh þetta er svona eins og skokkarar heilsa hver öðrum og hundaeigendur heilsast? Eigendur hraðskreiðra farartækja eiga sumsé leyni"handshake"?

Ef þú kennir mér það - er ég hugsanlega til viðræðna um hvað við gerum á sunnudögum þegar þú flýgur á fokkerum..... 

Hrönn Sigurðardóttir, 15.6.2009 kl. 23:23

2 Smámynd: Einar Indriðason

Eh... hérna... mér vitanlega þá fljúga Fokkerar ekki milli Íslands og Kaupmannahafnar....

En... skil svosem merkinguna, fyrir því :-)

Einar Indriðason, 16.6.2009 kl. 12:23

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Vá hvað þú ert mikill raggari.  Það er töffari, í Svíþjóð.  Eru á Skáni villingurinn þinn?

Jenný Anna Baldursdóttir, 16.6.2009 kl. 12:45

4 Smámynd: María Ólöf Sigurðardóttir

Sjúklegur bíll atarna! Það hefur ekki verið leiðinlegt að "krúsa um" á honum. Þú getur kannski reynt að rífa þakið af Poloinum og skella á hann blæju og þá ertu bara komin með næstum alveg eins bíl ;)

María Ólöf Sigurðardóttir, 21.6.2009 kl. 22:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband