Janúar áskorun til stjórnvalda! Nei bara til systkina!

Í nokkur ár höfum við systkinin eða aðallega ég fundið þörf hjá okkur eða mér til að komast aðþví hver sé í raun besta systkinið.  Um þessi jól fékk ég þá hugmynd að nota árið 2010 til að komast aðþví endanlega.  Á þessu ári mun ég skora 12 sinnum á systkini mín og var fyrsta áskorunin í gær í Go Kart brautinni á Korputorgi.  Keyrðum við um í tíumínútur á ljóshraða og kepptum við um hver fór hraðast hringinn!   Eitthvað heyrði Thelma nú vitlaust og keppti um eitthvað allt annað sem við skiljum ekki ennþá hvað var en okkur skildist nú að hún hafi tapað líka í því.  William Thomas bar sigur úr býtum í þetta sinn en ég held að það hafi verið skónum mínum að kenna, því ég keppti í inniskóm.  Sem sagt Janúar áskorunin er búin og í febrúar ætlum við að horfa á viðbjóðslega hryllingsmynd saman og sá sem lokar aldrei augunum nema til að blikka er besta systkynið í febrúar!  Mig grunar að Þórey muni ekki sigra í febrúar.  Sorry!  
Á ljóshraðaÖll að leggja afstaðWilliam VannFullorðna fólkið


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Já!! Ég vild´ég væri systkini þitt ;)

Hrönn Sigurðardóttir, 7.1.2010 kl. 22:55

2 identicon

Frábært framtak hjá þér Garún!

Ég mundi gera slíkt hið sama nema bræður mínir eru góðir í öllu og mundu örugglega mala mig (nema kanski í ráðski og ráðleggingum) +

Merkileg tilviljun að hæð ykkar systkina munstrast í stíl við neyslumunstur íslendinga 2007-2010 (willi 2007, thelma 2008, þú 2009 og Þórey (vonandi) 2010.

knús á ykkur öll!

Guðbjörg (IP-tala skráð) 7.1.2010 kl. 23:16

3 identicon

Var ekki æðislega gaman hjá ykkur.  Afhverju var mér ekki boðið með sem dómara?

kv. Sigga móða 

sigga (IP-tala skráð) 8.1.2010 kl. 11:04

4 identicon

hahaha... ég get sko alveg gefið febrúar sigurinn hér og nú, að horfa á hryllingsmynd er einskonar andleg stólpípa í mínum augum, s.s. EKKI gaman :p

Riiisa knús á þig Guðbjörg :*

Love you sæta sys :)

Þórey sys (IP-tala skráð) 10.1.2010 kl. 18:51

5 identicon

Svona hugmynd fær bara snillingur, tek þig til fyrirmyndar :)

Kata (IP-tala skráð) 19.1.2010 kl. 22:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband