13.7.2011 | 20:30
Að Semja er listform!
Ég er smá úrdráttur af símtali sem ég átti í morgun......
Það hófst þannig eins og öll önnur símtöl sem ég fæ að síminn hringdi..
Ég: Halló
Rödd: Guðrún Daníelsdóttir?
Ég: Já þetta er hún
Rödd: Áður en við höldum lengra þá langar mig að segja þér að þetta símtal er hljóðritað!
Ég: Ha! Nei ég samþykki það ekki, þú mátt ekki taka rödd mína upp nema með samþykki mínu...
Þögn í símann og svo var lagt á.....síminn hringdi aftur eftir nokkrar sekúndur...
Ég: Halló
Rödd: Halló er þetta Guðrún Daníelsdóttir?
Ég: Já
Rödd: Ég heiti Stella Sigurlaugsdóttir og er að hringja frá XXXX innheimtu
Ég: Já sæl
Rödd: Það er varðandi skuld þína við HS orku?
Ég: Já einmitt það er þarna einn reikningur sem varð eftir þegar ég færði í greiðsluþjónustu!
Rödd: Já einmitt..
Þögn í símann.....ég vissi ekki hvað ég átti að segja og hún var að bíða....
Ég: Halló?
Rödd: Já halló
Ég: Ég veit af þessum reikningi en ég get ekki borgað hann núna
Rödd: En þú getur samið um hann
Ég: ok, hvernig
Rödd: Hvað getur þú borgað mikið núna?
Ég: Eiginlega ekkert, ég á ekki krónu, það eru líka komnir svo háir vextir
Rödd: Já það koma náttúrulega vextir ef þú borgar ekki!
Ég: Já ég veit það
Rödd: En hvað heldur þú að þú getir greitt núna
Ég: Sko ég get ekki borgað neitt, ok kannski 5000 kall ef ég fæ hann lánaðann einhversstaðar
Rödd: Þú þarft að borga alla veganna helminginn, það er 17 þúsund krónur!
Ég: Ég get ekki borgað einu sinni 5 þúsund hvað þá 17 þúsund og rosalega er þetta orðið mikið
Rödd: Vextirnir! En þú verður að borga eitthvað núna svo ég geti haldið þessu opnu
Ég: Ok ég skil það ég get borgað 5 þús
Rödd: Nei ég get ekki tekið á móti því...Geturðu borgað kannski 20 þúsund?
Ég: Ha? Nei alls ekki...hvað gerist ef ég borga ekkert!
Rödd: Þá verður lokað og krafan send í lögfræði innheimtu!
Ég: Ekki gera það, það verður svo dýrt! Hvernig innheimta er þetta annars?
Rödd: Almenn innheimta?
Ég: En samt svona miklir vextir og kostnaður?
Rödd: Já svona er þetta?
Ég: En hvað get ég gert?
Rödd: Þú getur samið um þetta?
Ég: Mér heyrist ekki...mér finnst við ekkert vera að semja...
Rödd: Hvenær getur þú borgað
Ég: Næst þegar ég á pening, eða um mánaðarmótin hugsanlega
Rödd: En getur þú ekki borgað neitt núna...þ
Ég: Jú kannski 5 þúsund..
Rödd: Það er ekki nóg........................
Svona hélt símtalið áfram næstu 5 mínúturnar þar sem við vorum basically að semja um ekki neitt.......
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- malacai
- andreaolafs
- annaeinars
- annagisla
- audurkg
- agustaha6
- alfholl
- beggipopp
- birgittathorsteins
- birna-dis
- bjarkitryggva
- bjarnihardar
- bjarnthor
- bjork
- brandurj
- bros
- gattin
- bryndisisfold
- cerebellum
- dagmar
- rafdrottinn
- draumur
- saxi
- einari
- esv
- einarorneinars
- elinarnar
- ellasprella
- emblan
- jaherna
- fravik74
- vinursolons
- franmiller
- kransi
- trukona
- eddabjo
- dee
- skodun
- birkire
- hronnsig
- ingveldurthe
- jenfo
- jonaa
- jona-maria
- prakkarinn
- lotta
- lillagud
- lindalinnet
- bidda
- maggaelin
- margretsverris
- marypoppins
- marjasig
- nexa
- olinathorv
- pallmagnus
- ragnarfreyr
- ragnhildur
- roslin
- zigrun
- joklamus
- stjornlagathing
- lehamzdr
- steinunnolina
- sunnad
- svala-svala
- thelmaasdisar
- bliss
- william
Athugasemdir
FULDSTÆNDIGT HÅBLØST... og her gik jeg rundt og troede at du var stenrig:)
kunne du ikke have sagt; staten skylder mig penge.... send regningen til dem...
Monica Nielsen (IP-tala skráð) 14.7.2011 kl. 14:18
hahaha.......ég gekk bara frá þessu í morgun eins og sönnum manni sæmir...en ég vildi bara sýna frammá að þessi innheimtufyrirtæki eru ekkert að semja....þau eru ekkert að semja punktur
Garún, 14.7.2011 kl. 17:51
Garún, kan du ikke lige sende mig en mailadresse, hvor jeg kan få fat i dig?? Kommer til RVK igen til februar, og vil virkelig gerne se dig:)
Monica Nielsen (IP-tala skráð) 14.7.2011 kl. 20:03
Jú auðvitað elsku Monica mín.....það er hafnagata 10, 233 Reykjanes beibí
Garún, 14.7.2011 kl. 21:23
1000 tak... jeg gemmer den, sender måske et julekort... og vender tilbage, når vi nærmer os februar.. Knus
håber alt er vel??
Monica Nielsen (IP-tala skráð) 15.7.2011 kl. 11:21
Já.... þetta símtal sýnir ekki mikinn samningsvilja.... Meiri brotavilja ef eitthvað
Hrönn Sigurðardóttir, 16.7.2011 kl. 23:33
jamm og AÐ-SEMJA-EKKI-HELDUR-ÞVINGA-OG-NIÐURLÆGJA virðist vera uppáhaldsíþrótt flestra innheimtufyrirtækja.... :/
EmmErr (IP-tala skráð) 19.7.2011 kl. 11:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.