Fokin í rokinu aftur!

Ég á heima í timburhúsi við vog sem heitir Hafnir.  Í gær nötraði og dansaði litla timburhúsið mitt.  Rafmagnið fór af og litla timburhúsið og ég horfðum á hvort annað spurnaraugum.  "ekkert kaffi" spurði ég litla timburhúsið sem reyndi hvað það gat en náði ekki tengingu við rafmagnið.  Næstum allt sem mér datt í hug að gera í gær tengdist rafmagni með einum eða öðrum hætti.  Oft þurfti ég að stoppa mig.   Ég ætlaði til dæmis að horfa á sjónvarpið meðan ég væri að bíða eftir að rafmagnið kæmi, setja í þvottavél, hlusta á tónlist, baka, ryksuga eða gera bara eitthvað meðan ég væri að bíða.  Það eina sem meikaði sens að gera í gær í myrkrinu var að affrysta ísskápinn og þrífa hann sem ég nennti engan veginn svo ég fór út að leika!   Og þvílíkt rok.  Hér eru myndir. 
rokrok1fokinmamma

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Skemmtilegt er frá því að segja að ég heyrði einmitt í sjónvarpinu að rafmagnið hafði farið af í Höfnum og varð hugsað til þín!
Kom það ekki alveg örugglega aftur um 9 leytið eins og var sagt að mundi gera?

Róslín A. Valdemarsdóttir, 22.1.2010 kl. 15:15

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Gott þú faukst ekki á haf út! Það hefði verið slæmt og svo hefði rafmagnið komið aftur.

Hrönn Sigurðardóttir, 22.1.2010 kl. 15:42

3 Smámynd: Sunna Sigrúnardóttir

hahaha þú  hefur semsagt ekki verið ein af þeim sem lenti í því að sjónvarpið þeirra sprakk.....þvílíkt og annað eins! svona fer þegar maður býr á undarlegum stöðum á landinu!

Sunna Sigrúnardóttir, 22.1.2010 kl. 16:27

4 Smámynd: María Ólöf Sigurðardóttir

Annað sem var heldur ekki hægt að gera sem tengist rafmagni ekki neitt!! Lesa!! En þó betra að hafa ljós til þess ;). Ég hélt á tímabili að þú tækist á loft þarna úti á bryggjunni og flygir eitthvað út í hafsauga, nett sem þú ert.

María Ólöf Sigurðardóttir, 23.1.2010 kl. 19:42

5 Smámynd: Steingrímur Helgason

Orð dagsinz er 'prímuz', kona...

Steingrímur Helgason, 23.1.2010 kl. 23:51

6 identicon

Spurning hvort þú ættir að þyngja þig með lóðum ( svona þegar hvessir í Höfnum). Tókstu  engar myndir af ljósadýrðinni um daginn hefði náttúrlega verið frábært að sjá það og helst að heyra skrugguhljóðin. kv. Sigga

Sigga (IP-tala skráð) 25.1.2010 kl. 07:53

7 identicon

hahaha þvílík snilld... hefði verið geggjað til í að vera með í rokinu þar sem að loftið haggast ekki í Prag, mjög spes. En það er mjög sniðugt að eiga GameBoy í svona aðstæðum :)

Guðný Lára (IP-tala skráð) 1.2.2010 kl. 12:21

8 identicon

Híhíhíhíhíhí gott að pallurinn fíni fauk ekki á haf út.

Hildur Birna (IP-tala skráð) 1.2.2010 kl. 12:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband