Færsluflokkur: Bloggar
29.12.2009 | 14:54
Fullorðinsstuff
"afhverju þarf ég endilega að vera í skóla?" Spurði litli gutti mig í gærkveldi og þegar ég sagði honum að það væri til að mennta sig svo hann gæti unnið þegar hann yrði stór, fussaði hann og andvarpaði "ég vil ekki vinna, ég vil verða rokkari!". Hann var harðákveðinn. "ok en rokkarar þurfa líka að vinna svo þeir geti keypt sér græjur og borgað hótelherbergi og bensín á milli staða" svaraði ég og mér fannst ég svakalega snjöll. "Ég þarf ekki rafmagn ég vil verða trommari og svo ætla ég að sofa í tjaldi". hm þetta var að verða snúið. "ok en trommur kosta pening! og tjald kostar pening og þú þarft að borða" Ég fann að þetta samtal var að verða snúið. "einhver gefur mér trommur og ég nota tjaldið hans Steinþórs" Hélt litli dreki áfram og stóri dreki rumdi áhyggjufullur yfir því að vera að klúðra uppeldinu. "ok ok en þú þarft að læra á trommur" Sagði ég ánægð með að vera búin að snúa samtalinu til baka að lærdómi. En nei litli dreki rústaði þessu með einni setningu og blés toppnum til hægri "ég kann á trommur". Þar með var tilraun mín til Hjallastefnu rústað og ég keypti bara nammi og kakó handa drekanum sem ætlar aldrei að vinna né vera í skóla. Vonandi að foreldrarnir geti lagað það sem ég náði að klúðra í einum litlum bíltúr frá Höfnum yfir í Njarðvík. Úpps.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
27.12.2009 | 12:58
Hvatvísi
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
24.12.2009 | 11:00
Gleðileg Jól 2009
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
16.12.2009 | 18:25
Timburmenn
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
15.12.2009 | 22:10
Heppin í hálku.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
14.12.2009 | 23:46
Nágrannagæsla
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
11.12.2009 | 11:13
Undur og Stórhveli í Höfnum!
Jæja þá er farið að róast hjá mér vinnulega séð en ég er samt með svo mörg ál í eldinum að álverð hefur hækkað umtalsvert á heimsvísu samkvæmt mogganum í dag! Stundum held ég að það sé eitthvað alvarlegt að hausnum á mér sjá dæmi að neðan.
Ég fór í göngutúr um fjöruna mína í gær með Rósu Anúbis og var í makindum mínum þegar ég alltí einu sá eitthvað ferlíki liggja upp við steinana. Ég stoppaði og horfði á flykkið og það fyrsta sem mér datt í hug var "guð minn góður....er þetta fíll?" Ég er ekki að grínast þarna stóð ég og gapti af undrun! Gott ef ég hélt bara ekki niðrí mér andanum. "guð minn góður það hefur fíll drukknað í Afríku og hann hefur rekið alla leiðina hingað og liggur nú rotnandi í fjöruborðinu hjá mér". Ég fékk gífurlegan hjartslátt meðan ég reyndi að koma ró á hugsanir mínar "shitt í hvern á ég að hringja?" . Ég sá fyrir mér allar sjónvarpsstöðvar landsins koma og taka viðtal við mig og ég var byrjuð að ímynda mér hvað ég ætti að segja "já ég var nú bara á gangi þegar ég tók eftir fílnum og ........". Ég næstum hoppaði og skoppaði af gleði þegar ég gekk fram fyrir dýrið. Þar horfði ég stórum augum á líkið í fjöruborðinu og skoðaði það betur. En hvaða hvaða voðalega skrítnar lappir á þessum fíl! Hann virðist bara vera með eina afturlöpp. Nú æstust leikar! og viðtalið í hausnum mínum hélt áfram. "já svo virðist vera sem þessi fíll sé einnig vanskapur og hefur hugsanlega drukknað útaf því að hann er bara með eina löpp.........". Laust þá ekki niðrí kollinn á mér sem er svakalega skemmdur, að þetta gæti svo sem verið hvalur! ooooohhhhhh og púsluspilið raðaðist upp og tveir plús tveir urðu aftur fjórir og lífið varð venjulegt á ný. Engin CNN, Stöð 2 eða Rúv í heimsókn í Hafnir. Þetta er víst meðalstór Hrefna sem liggur nú og rotnar í flæðamálinu. Ekkert spennandi! En að mér skildi aldrei detta í hug að þetta gæti verið Hvalur er með hulin ráðgáta! Nei auðvitað er þetta fíll. En ef þið skoðið myndirnar þá sjáið þið kannski að aftan frá virkar þetta eins og fíll!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
18.11.2009 | 12:28
28/7 ég lifi eftir því!
Já það er sjaldan lognmolla í kringum mig. Ég hef þann einstaka hæfileika að flækja líf mitt og gera það svona ofurbíssí. Undanfarnar vikur er ég búin að vera með aðra löppina á Akureyri og Selfossi, vinna við áramótaskaupið, vinna við nokkrar auglýsingar, flísaleggja og sýningastjórast uppí Loftkastala. Mér finnst ég stundum soldið vinna eins og það sé enginn morgundagur og ef ég sé frammá 10 mínútna pásu þá er ég fljót að fylla hana. Vinir mínir segja að þetta sé vegna þess að ég eigi erfitt með að segja nei en NEI ég held ekki, mér finnst bara allt svo svakalega góð hugmynd.
Ég fór í síðustu viku á söngvakeppni í FSU og Vá ....mig minnir að þegar ég var á þessum aldri 16 til 20 ára þá var ég ekki svona hæfileikarík og er reyndar heldur ekki núna þótt ég taki stundum stökk í Singstar og rústi því. Krakkarnir sem stigu þar á svið voru hver öðrum hæfileikaríkari og þessi kvöldstund var algerlega frábær. Ég er að fara að leikstýra þessum krökkum eftir áramót og eftir að hafa séð þetta performans þá eiginlega get ég ekki beðið og the sky is the limit I can tell you. En meira seinna þegar ég er búin í skaupinu og með flísalögnina.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
31.10.2009 | 12:25
Hundablogg
Ok ég lofa að þetta er ekki að verða hundablogg. Lof lof. En mig langaði bara að segja ykkur að nú er ég búin að vera í viku á Akureyri með Rósu litlu og hún var algerlega stórkostleg. En ég hef aldrei vitað hund sem er latur og fílar ekki veðrabreytingar. Fór í göngutúr í Kjarnaskóg með hana og hún vældi og röflaði allan tímann þangað til ég þurfti að halda á henni síðasta kílómeterinn. Þá lá hún á öxlinni á mér með snudduna sína og var ánægð með göngutúrinn. Skrítin hundur. En dýralæknirinn á Akureyri gaf henni ullarpeysu til að vera í í frostinu og svo keypti ég hundaöryggisbelti. Svo lá hún í fletinu sínu, í ullarpeysu, með snuddu og bílbelti þegar við keyrðum til Reykjavíkur og lífið er dásamlegt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
27.10.2009 | 15:10
Öll í kleinu
Það vantar í mig millikafla! Og reyndar alveg fleiri blaðsíður ef út í það er farið. En svona er ég bara og kann ágætlega við hluti sem hafa upphaf og endi og þá sérstaklega góðan endi. Ég hef aldrei verið sú besta í að bíða, gera hlutina hægt, eða ígrunda of lengi eða staldra við. Ekki misskilja mig, ég er ekkert tryllt! Ég er bara þannig að mig langar að vita hvað ég get, hvort ég geti það eða verð að prófa til að mynda mér skoðun. Þannig er mál með vexti að ég hef aldrei getað bakað, það vantar í mig þetta húsmæðragen. Get rétt svo vaskað upp og næstum því ryksugað! Nema hvað um daginn þá datt mér í hug að það væri kannski komin tími til að baka! Og ég ákvað að byrja á einhverju svona auðveldu og ákvað að baka kleinur! Og viti menn, það er bara ekkert mál. Eiginlega PÍS OF KEIK! (takið eftir orðaleiknum með keik). Kleinurnar voru svakalega góðar fyrsta klukkutímann eftir baksturinn en síðan eiginlega bara ógeðslegar og vil ég kenna hjartarsaltinu um þó ég viti ekki alveg afhverju! Ætla næst að nota matarsóda og smá engifer, veit samt eiginlega ekki afhverju! Spennandi. Héðan í frá ætla ég að baka kleinur einu sinni í viku! Meðan ég bakaði vingaðist Rósa litla við Sóma og sváfu þau saman á uppáhaldsstólnum sínum meðan ég steikti. Loforðið ég: Ég ætla að verða kleinubakari af Guðs náð.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- malacai
- andreaolafs
- annaeinars
- annagisla
- audurkg
- agustaha6
- alfholl
- beggipopp
- birgittathorsteins
- birna-dis
- bjarkitryggva
- bjarnihardar
- bjarnthor
- bjork
- brandurj
- bros
- gattin
- bryndisisfold
- cerebellum
- dagmar
- rafdrottinn
- draumur
- saxi
- einari
- esv
- einarorneinars
- elinarnar
- ellasprella
- emblan
- jaherna
- fravik74
- vinursolons
- franmiller
- kransi
- trukona
- eddabjo
- dee
- skodun
- birkire
- hronnsig
- ingveldurthe
- jenfo
- jonaa
- jona-maria
- prakkarinn
- lotta
- lillagud
- lindalinnet
- bidda
- maggaelin
- margretsverris
- marypoppins
- marjasig
- nexa
- olinathorv
- pallmagnus
- ragnarfreyr
- ragnhildur
- roslin
- zigrun
- joklamus
- stjornlagathing
- lehamzdr
- steinunnolina
- sunnad
- svala-svala
- thelmaasdisar
- bliss
- william